Teboð á Hönnunarmars Leir7 tekur þátt í HönnunarMars sem verður haldinn dagana 24. - 27. mars n.k. Í glugga ELM á Laugavegi 1 verða tebollarnir sýndir og nú hafa hönnuðir bætt við loki á bollana sem nota skal meðan teið trekkir í nokkrar mínútur. Lokið getur svo verið undirskál þegar teið er tilbúið eða plata fyrir notaðan tepokann. Hönnuðir eru: Elísabet Haraldsdóttir Aðalblár Kristín Ísleifsdóttir Birkir Ólöf Erla Bjarnadóttir Fífill Sigríður Erla Guðmundsdóttir Hrútur Í anddyri Íslensku óperunnar verður haldið Teboð laugardaginn 26.mars kl 15-17. Boðið verður upp á te sem unnið er úr jurtunum fjórum sem bollarnir sækja áhrif til. Teið sem er framleitt af Matarbúðinni í Hafnarfirði og ber heitið Fagradalste inniheldur aðalbláberjalyng, birkilauf, fífil og hrútaberjalyng. Gestum býðst að velja bolla til að smakka teið úr, eitthvað munngott og lifandi tónlist Stúlknadjasstríósins. Verið velkomin |